Kosningar til Alþingis hinn 12. maí 2007
Upplýsingar um kosningarnar er annars vegar að finna í hagtíðindum Hagstofu Íslands og hins vegar í skýrslum yfirkjörstjórna og landskjörstjórnar.
Framboð, kjósendur, kosningaþátttaka
Hagstofa Íslands gefur út kosningaskýrslur.
Frá og með alþingiskosningunum 2007 fjalla þessar skýrslur einkum um framboð, kjósendur á kjörskrá og kosningaþátttöku en síður um sjálfa úthlutun þingsæta. Skýrsla um alþingiskosningarnar 2007 er bæði að finna í prentuðu formi og á vefsíðu Hagstofunnar.
Úrslit og úthlutun þingsæta
Yfirkjörstjórnir í hverju kjördæmi skila landskjörstjórn skýrslum um talningu atkvæða. Í skýrslum yfirkjörstjórna er m.a. að finna atkvæði frambjóðenda í einstök sæti eftir að tekið hefur verið tillit til breytinga kjósenda á röð frambjóðenda. Þessar upplýsingar er að finna á eftirtöldum vefsíðum, en þar má ennfremur sjá heildaratkvæðatölu frambjóðenda sem landskjörstjórn reiknar út, sbr. 110. gr. kosningalaganna (sjá síðar):
- Norðvesturkjördæmi
- Norðausturkjördæmi
- Suðurkjördæmi
- Suðvesturkjördæmi
- Reykjavíkurkjördæmi suður
- Reykjavíkurkjördæmi norður
Landskjörstjórn úthlutar þingsætum eftir ákvæðum í XVI. kafla laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 með síðari breytingum. Þessu úthlutunarferli er lýst í einstökum atriðum eftirfarandi greinargerð:
Sjá ennfremur: Greining á úthlutun þingsæta við alþingiskosningarnar 12. maí 2007 (pdf) og endurskoðaða gerð hennar til samræmis við umfjöllun um kosningarnar 2013: Greining á úthlutun þingsæta við alþingiskosningarnar 12. maí 2007 endurskoðuð 2013 (pdf).