Auglýsing frá landskjörstjórn
Framboð við alþingiskosningarnar 29. október 2016.
Landskjörstjórn gjörir kunnugt með vísan til 44. gr. laga um kosningar til Alþingis að bornir verða fram eftirfarandi listar í öllum kjördæmum landsins við alþingiskosningar sem eiga að fara fram 29. október 2016:
A-listi borinn fram af Bjartri framtíð.
B-listi borinn fram af Framsóknarflokki.
C-listi borinn fram af Viðreisn.
D-listi borinn fram af Sjálfstæðisflokki.
F-listi borinn fram af Flokki fólksins.
P-listi borinn fram af Pírötum.
S-listi borinn fram af Samfylkingunni – jafnaðarmannaflokki Íslands.
T-listi borinn fram af Dögun – stjórnmálasamtökum um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
V-listi borinn fram af Vinstrihreyfingunni – grænu framboði.
Eftirfarandi listi verður borinn fram í Norðausturkjördæmi, Suðurkjördæmi, Suðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmum norður og suður:
R-listi borinn fram af Alþýðufylkingunni.
Eftirfarandi listi verður borinn fram í Norðvesturkjördæmi og Suðurkjördæmi:
E-listi borinn fram af Íslensku þjóðfylkingunni.
Eftirfarandi listi verður borinn fram í Reykjavíkurkjördæmi suður:
H-listi borinn fram af Húmanistaflokknum.
Reykjavík, 18. október 2016.
Landskjörstjórn.