Mörk kjördæmanna í Reykjavík við kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010.
Við fyrirhugaða kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010 eiga mörk kjördæma að vera þau sömu og við síðustu alþingiskosningarnar, sbr. 15. gr. a laga nr. 90/2010 um stjórnlagaþing, sbr. auglýsingu dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins í Lögbirtingablaði, 23. september 2010. Á fundi landskjörstjórnar 8. nóvember sl. var samþykkt ályktun um að auglýsing nr. 346/2009, sem fjallar um mörk kjördæmanna tveggja í Reykjavík við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009, skuli fylgt við kosningarnar. Gildir það einnig um fyrirmæli hennar um hvar mörkin skuli vera í hverjum mánuði, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga nr. 24/2000, en þau ráða því hvar þeir, sem taka ber á kjörskrá í Reykjavík en búa erlendis eða eru óstaðsettir í hús í Reykjavík, greiða atkvæði. Samkvæmt því greiða þeir sem tilheyra þessum hópum og eru fæddir 1. til 15. hvers mánaðar atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi suður en þeir sem eru fæddir 16. dag mánaðar eða síðar í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Auglýsing nr. 346/2009 http://landskjor.is/landkjorstjorn/frettir-tilkynningar/nr/59